Sverri Þór Sverrissyni, þjálfara Keflvíkinga, var létt þegar lokaflautið gall í leik Keflvíkinga og Grindvíkinga í Dominos-deild karla í körfubolta í kvöld.
Keflavík sigraði, 88:77, og eftir þrjá tapleiki í röð náðu Keflvíkingar loksins að landa sigri.
Framan af leit það ekki vel út fyrir Keflvíkinga en hálfleiksræða Sverris hefur dugað til því þeir spiluðu töluvert betur í seinni hálfleik. Það var einmitt það sem Sverrir sagði að hafi verið frábært hjá sínum mönnum þetta kvöldið. Allir að vinna saman og berjast fyrir sínu.