Tryggvi Snær Hlinason átti flottan leik fyrir Obradoiro þegar liðið vann 89:86-heimasigur gegn Unicaja Málaga í spænsku A-deildinni í körfuknattleik í dag en Tryggvi skoraði sjö stig, tók fjögur fráköst og gaf 3 stoðsendingar í leiknum.
Obradoiro var einu stigi yfir eftir fyrsta leikhluta en Unicaja Málaga var fjórum stigum yfir í hálfleik. Obradorio spilaði vel í þriðja og fjórða leikhluta og vann að lokum tæpan þriggja stiga sigur en Tryggvi spilaði í rúmlega 17 mínútur í leiknum.
Obradoiro er í ellefta sæti spænsku A-deildarinnar með 14 stig eftir fyrstu sautján umferðirnar, fjórum stigum frá Manresa sem er í áttunda sætinu, sem er jafnframt síðasta úrslitakeppnissætið í spænsku deildinni.