Ball frá í rúmlega mánuð

Lonzo Ball verður frá keppni næstu vikurnar.
Lonzo Ball verður frá keppni næstu vikurnar. AFP

Körfuboltamaðurinn Lonzo Ball verður frá næstu 4-6 vikurnar vegna meiðsla. Ball tognaði á ökkla er Los Angeles Lakers tapaði fyrir Houston Rockets síðastliðna sunnudagsnótt. 

Lakers er nú þegar án LeBron James og Rajon Rondo vegna meiðsla og þeir Kyle Kuzma, Brandon Ingram og JaVale McGee eru búnir að missa af leikjum vegna meiðsla. 

Fyrir vikið er liðið dottið niður í níunda sæti í vesturdeild NBA-deildarinnar, eftir að hafa vermt fjórða sætið á tímabili. Lakers er búið að vinna 25 leiki og tapa 23 leikjum á leiktíðinni til þessa. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert