Martin Hermannsson var hetja þýska liðsins Alba Berlín sem vann góðan 87:85-heimasigur á Vilnius Rytas frá Litháen í Evrópubikarnum í körfubolta í kvöld. Martin tryggði sigurinn á vítalínunni þegar aðeins ein sekúnda var eftir.
Rytas var með 85:84-forystu er Alba fór af stað í síðustu sókn sína. Martin tók þá af skarið fyrir utan þriggja stiga línuna, hitti ekki, en náði í villu og þrjú vítaskot. Martin hitti úr öllum þremur vítaskotunum og tryggði Alba sigurinn.
Martin var besti maður vallarins, skoraði 25 stig, tók tvö fráköst og gaf tvær stoðsendingar. Alba er á toppi E-riðils eftir fjóra leiki með þrjá sigra og eitt tap.