Carmelo Anthony fær tækifæri

Carmelo Anthony og James Harden fara yfir sviðið í leik …
Carmelo Anthony og James Harden fara yfir sviðið í leik hjá Houston fyrir ári síðan. AFP

Nú virðist vera að rofa til hjá gömlu NBA kempunni Carmelo Anthony en Portland Trail Blazers ætlar að veðja á kappann. 

Þrátt fyrir flottan feril í NBA og með bandaríska landsliðinu var Anthony samningslaus frá því síðasta vetur. Síðasta tímabil rann nánast út í sandinn þegar hann var settur út úr liðinu hjá Houston Rockets og í framhaldinu leystur undan samningi.

Anthony hafnaði því í sumar að leika utan Bandaríkjanna en kínversk lið voru sögð áhugasöm. Umboðsmaður hans lýsti því yfir að Anthony vildi gjarnan ná einu tímabili til viðbótar í NBA og kveðja þannig deildina líkt og Dwayne Wade hefði gert síðasta vetur. 

Anthony er ekki nema 35 ára gamall en hefur ávallt verið mikill skorari. Aðrir þættir leiksins þykja hins vegar ekki eins góðir hjá honum. 

Portland hefur ekki byrjað tímabilið nógu vel og hefur unnið 4 af fyrstu 12 leikjunum en liðið lék vel í úrslitakeppninni síðasta vor. 

E

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert