KKÍ boðar til fréttamannafundar - Ráðning á landsliðsþjálfara

Craig Pedersen hefur stýrt karlalandsliðinu í körfuknattleik frá árinu 2014.
Craig Pedersen hefur stýrt karlalandsliðinu í körfuknattleik frá árinu 2014. mbl.is/Hari

Körfuknattleikssamband Íslands hefur boðað til fréttamannafundar í hádeginu á morgun vegna ráðningar á þjálfara fyrir karlalandsliðið.

Samningur Kanadamannsins Craig Pedersen rennur út um áramótin en hann hefur stýrt landsliðinu frá árinu 2014. Undir hans stjórn komst Ísland tvisvar sinnum í lokakeppni Evrópumótsins.

Ísland náði ekki að tryggja sér sæti í undankeppni Evrópumótsins eftir slæmt tap á móti Sviss í forkeppninni í ágúst en næsta verkefni landsliðsins hefst í febrúar þegar það hefur þátttöku í forkeppni heimsmeistaramótsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert