Miðherjinn er fingurbrotinn

Jasmin Perkovic.
Jasmin Perkovic. mbl.is/Árni Sæberg

Tindastóll lék án miðherjans, Jasmin Perkovic, í Grafarvoginum í gær þegar liðið mætti Fjölni í Dominos-deildinni í körfuknattleik. 

Netmiðillinn Karfan.is greinir frá því að Perkovic sé fingurbrotinn og hefur það eftir þjálfara liðsins Baldri Þór Ragnarssyni. 

Perkovic hefur skorað 11 stig að meðaltali í upphafi tímabilsins en Tindastóll hefur verið á góðu róli í deildinni og unnið sex af fyrstu átta leikjunum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert