Tryggvi með þeim bestu á Spáni

Tryggvi Snær Hlinason var sterkur í kvöld.
Tryggvi Snær Hlinason var sterkur í kvöld.

Tryggvi Snær Hlinason var á meðal bestu leikmanna Zaragoza er liðið þurfti að sætta sig við 72:77-tap á heimavelli fyrir Bonn frá Þýskalandi í Meistaradeild Evrópu í körfubolta í kvöld. 

Tryggvi var með tólf framlagspunkta og var efstur ásamt tveimur liðsfélögum sínum. Zaragoza vann þær 15 mínútur sem Tryggvi spilaði með 10 stigum, þrátt fyrir tapið. 

Zaragoza er í 5. sæti sín riðils með 12 stig eftir átta leiki, aðeins einu stigi á eftir Bonn, sem er í toppsæti riðilsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert