Slóveninn setti persónulegt met

Luka Doncic fór á kostum gegn Portland Trail Blazers í …
Luka Doncic fór á kostum gegn Portland Trail Blazers í nótt. AFP

Slóveninn Luka Doncic fór á kostum þegar lið hans Dallas Mavericks vann átta stiga sigur gegn Portland Trail Blazers í NBA-deildinni í körfuknattleik í nótt. Leiknum lauk með 120:112-sigri Dalls en Doncic var stigahæstur í liði Dallas með 35 stig, átta fráköst og sjö stoðsendingar.

Jafnræði var með liðunum í fyrsta leikhluta en Dallas-menn tóku völdin á vellinum í öðrum leikhluta og leiddu með níu stigum í hálfleik, 72:63. Síðari hálfleikurinn var afar jafn þar sem liðin skiptust á að skora, án þess þó Portland hafi tekist að minnka forskot Dallas.

Luka Doncic skoraði átta þriggja stiga körfur í leiknum úr tólf skotum en það er persónulegt met hjá Slóvenanum. Dallas er í sjötta sæti Vesturdeildarinnar með 27 sigra en liðið er nánast öruggt með sæti í úrslitakeppninni eftir fjóra sigra í röð.

Úrslit næturinnar í NBA:

Indiana Pacers 116:114 Minnesota Timberwolves
Philadelphia 76ers 100:89:Chicago Bulls
Toronto Raptors 140:111 Washington Wizards
Memphis Grizzlies 113:Cleveland Cavaliers
Oklahoma City Thunder 108:115 Miami Heat
San Antonio Spurs 120:121 Atlanta Hawks 
Dallas Mavericks 120:112 Portland Trail Blazers

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert