KR er komið í undanúrslit Geysisbikars kvenna í körfubolta eftir afar sannfærandi 82:60-sigur á Keflavík á útivelli í kvöld. KR skoraði 20 fyrstu stigin og átti Keflavík aldrei möguleika eftir það.
KR er þriðja liðið sem tryggir sér sæti í undanúrslitum, en Valur og Haukar gerðu slíkt hið sama fyrr í dag. ÍR eða Skallagrímur leika um síðasta sætið í næstu umferð í Breiðholtinu á morgun.
Hildur Björg Kjartansdóttir átti mjög góðan leik fyrir KR og skoraði 23 stig á meðan Danielle Rodriguez gerði 17. Daniela Wallen skoraði 12 stig fyrir Keflavík og Þóranna Kika Hodge-Carr 12 stig.