Kominn í bikarúrslitaleikinn í Danmörku

Finnur Freyr Stefánsson er sigursæll þjálfari.
Finnur Freyr Stefánsson er sigursæll þjálfari. mbl.is/Árni Sæberg

Finnur Freyr Stefánsson körfuknattleiksþjálfari er kominn með lið sitt Horsens í bikarúrslitaleikinn í Danmörku.

Horsens sigraði Næstved í undanúrslitum bikarkeppninnar á útivelli í gær, 86:78, og mætir Bakken Bears í úrslitaleik keppninnar. Úrslitaleikurinn fer fram á heimavelli Horsens 8. febrúar.

Finnur er vanur því að vinna titla en hann varð sem kunnugt er Íslandsmeistari með karlalið KR-inga fimm ár í röð, frá 2014 til 2018.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert