Elvar gaf níu stoðsendingar

Elvar Már í landsleik á dögunum.
Elvar Már í landsleik á dögunum. Ljósmynd/FIBA

Elvar Már Friðriksson gaf níu stoðsendingar þegar Siauliai komst áfram í bikarkeppninni í körfuknattleik í Litháen í gærkvöld. 

Siauliai vann Neptunas 75:69 og hefur liðið þá unnið þrjá leiki í röð í deild og bikar. 

Elvar skoraði minna en stundum áður en hann skoraði 5 stig. Hann lét til sín taka í vörninni og stal boltanum þrívegis. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert