Bandaríski körfuknattleiksmaðurinn Blake Griffin hefur komist að samkomulagi við Boston Celtics, sem leikur í NBA-deildinni, um að skrifa undir eins árs samning við félagið.
Adrian Wojnarowski, sérfræðingur ESPN í NBA-deildinni, greinir frá þessu á twitteraðgangi sínum í dag.
Griffin, sem leikur í stöðu kraftframherja, lék síðast fyrir Brooklyn Nets í deildinni, þar sem hann var á mála í eitt og hálft tímabil.
Áður hafði hann gert garðinn frægan með Detroit Pistons og LA Clippers, en tíð meiðsli hafa sett strik í reikninginn á ferli Griffins, sem er 33 ára gamall.
Free agent Blake Griffin has agreed to a one-year, fully guaranteed deal with the Boston Celtics, sources tell ESPN.
— Adrian Wojnarowski (@wojespn) September 30, 2022