Sterkur sigur Blika í upphafsleiknum

Everage Lee Richardson átti virkilega góðan leik fyrir Breiðablik.
Everage Lee Richardson átti virkilega góðan leik fyrir Breiðablik. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Breiðablik gerði afar góða ferð suður til Þorlákshafnar og vann 111:100-útisigur á Þór í upphafsleik Subway-deildar karla í körfubolta í kvöld.

Breiðablik byrjaði með látum, því staðan eftir fyrsta leikhlutann var 31:15. Þórsarar löguðu stöðuna í öðrum leikhlutanum og var staðan í hálfleik 53:46.

Blikarnir voru hins vegar sterkari í seinni hálfleik og unnu að lokum ellefu stiga sigur.

Everage Richardson skoraði 28 stig fyrir Breiðablik og tók níu fráköst. Clayton Riggs bætti við 20 stigum, sjö fráköstum og átta stoðsendingum.

Spánverjinn Pablo Hernández gerði 28 stig og tók 10 fráköst fyrir Þór og Adam Rönnqvist skoraði 20 stig.

Icelandic Glacial höllin, Subway deild karla, 06. október 2022.

Gangur leiksins:: 2:7, 10:14, 12:23, 15:31, 24:37, 35:46, 41:48, 46:53, 52:62, 63:70, 70:78, 75:87, 83:94, 83:97, 91:106, 100:111.

Þór Þ.: Pablo Hernandez Montenegro 28/10 fráköst, Adam Rönnqvist 20/4 fráköst/5 stoðsendingar, Tómas Valur Þrastarson 14, Davíð Arnar Ágústsson 13, Daníel Ágúst Halldórsson 10/5 stoðsendingar, Alonzo Anthony Walker 10/8 fráköst, Fotios Lampropoulos 4/8 fráköst, Emil Karel Einarsson 1.

Fráköst: 33 í vörn, 6 í sókn.

Breiðablik: Everage Lee Richardson 28/9 fráköst/6 stoðsendingar, Clayton Riggs Ladine 20/7 fráköst/8 stoðsendingar, Danero Thomas 19/7 fráköst, Julio Calver De Assis Afonso 19/7 fráköst, Sigurður Pétursson 11/6 fráköst/7 stolnir, Árni Elmar Hrafnsson 10, Sölvi Ólason 4.

Fráköst: 28 í vörn, 11 í sókn.

Dómarar: Jóhannes Páll Friðriksson, Bjarni Hlíðkvist Kristmarsson, Aron Rúnarsson.

Áhorfendur: 130

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert