KR semur við finnskan bakvörð

Aapeli Ananen.
Aapeli Ananen. Ljósmynd/kr.is

Körfuknattleiksdeild KR hefur samið við finnska bakvörðinn Aapeli Alanen.

Í tilkynningu frá félaginu segir að Alanen sé 26 ára gamall og 201 sentimetri á hæð.

Alanen lék á síðustu leiktíð með SKN St. Pölten í efstu deild í Austurríki en þar var hann með 16,6 stig, 5,6 fráköst og 1,9 stoðsendingar að meðaltali í leik. Áður hefur hann leikið með nokkrum liðum í finnsku úrvalsdeildinni.

Alanen hefur leikið með A-landsliði Finna á undanförnum árum.

KR hefur farið illa af stað á leiktíðinni, aðeins unnið einn leik í fyrstu sjö umferðunum.

Í tilkynningu KR segir að leikmaðurinn sé mættur til landsins og verði vonandi með í næsta deildarleik.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert