Ótrúlegur leikur gríska skrímslisins – LeBron nálgast metið óðfluga

Giannis Antetokounmpo (til hægri) fór á kostum í nótt.
Giannis Antetokounmpo (til hægri) fór á kostum í nótt. AFP/Stacy Revere

Grikkinn Giannis Antetokounmpo átti hreint lygilegan leik fyrir Milwaukee Bucks þegar liðið vann LA Clippers með minnsta mun, 106:105, í NBA-deildinni í körfuknattleik í nótt.

Antetokounmpo, sem gengur undir viðurnefninu „gríska skrímslið“, tætti lið Clippers í sig þegar hann skoraði 54 stig og tók 19 fráköst.

LeBron James færist þá sífellt nær stigameti Kareem Abdul-Jabbar í deildinni. Skoraði James 26 stig, tók sjö fráköst og gaf sjö stoðsendingar í 112:111-sigri á Indiana Pacers.

Hann er nú aðeins 63 stigum frá því að bæta met Abdul-Jabbars yfir flest stig skoruð í sögu deildarinnar, 38,387. LeBron hefur skorað  38,325 stig.

Öll úrslit næturinnar:

Milwaukee – LA Clippers 106:105

Indiana – LA Lakers 111:112

New York – Miami 106:104

Cleveland – Memphis 128:113

Chicago – Charlotte 114:98

Denver – Golden State 134:117

Dallas – New Orleans 111:106

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert