Á Ronaldinho í baráttu við aukakílóin?

Ronaldinho 2003 til vinstri og 2007 til hægri.
Ronaldinho 2003 til vinstri og 2007 til hægri. AS

Er Ronaldinho að feta í fótspor Ronaldo? Þessari spurningu slær spænska íþróttablaðið AS upp í blaði sínu í dag. Blaðið birtir tvær myndir af Ronaldinho þegar hann gengur af leikvelli ber að ofan. Þá fyrri eftir leik Barcelona gegn Real Sociedad í nóvember 2003 og þá síðari eftir leik Börsunga gegn Liverpool í Meistaradeildinni í vikunni.

Þegar þessar myndir eru bornar saman leynir sér ekki að brasilíski töframaðurinn hefur bætt töluvert á sig en hvort það er ástæðan fyrir því hann hafi ekki náð sér á strik í leiknum við Liverpool og í síðustu leikjum skal ósagt látið. Landi hans og félagi í brasilíska landsliðinu, Ronaldo, hefur lengi átt í stríði við aukakílóin og spurningin sem AS veltur upp er hvort Ronaldino sé of þungur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert