Guðjón Valur ekki í úrvalsliði HM

Guðjón Valur Sigurðsson.
Guðjón Valur Sigurðsson. mbl.is/Günter Schröder

Enginn íslenskur leikmaður var valinn í 7 manna úrvalslið heimsmeistaramótsins í handknattleik. Fjórir af sjö leikmönnum liðsins léku með sínum liðum í úrslitaleiknum í dag en liðið er þannig skipað:

Markvörður: Henning Fritz (Þýskaland), vinstri hornamaður Eduard Koksarov (Rússland), vinstri skytta Nikola Karabatic (Frakkland), línumaður Michael V. Knudsen (Danmörk), leikstjórnandi Michael Kraus (Þýskaland), hægri skytta Marcin Lijewski (Pólland), hægri hornamaður Mariusz Jurasik (Pólland). Ivano Balic var valinn mikilvægasti leikmaðurinn fyrir sitt lið, Króatíu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert