Íþróttahátíð fram undan í Reykjavík

Á sjötta hundrað erlendra gesta mæta á íþróttahátíðina WOW Reykjavik …
Á sjötta hundrað erlendra gesta mæta á íþróttahátíðina WOW Reykjavik International Games. Sportmyndir.is

Íþróttahátíðin WOW Reykjavik International Games fer fram dagana 25. janúar til 4. febrúar. Keppt verður í 17 íþróttagreinum þar sem reiknað er með þátttöku á sjötta hundrað erlendra gesta ásamt flestu af besta íþróttafólki okkar Íslendinga. Keppnin fer að mestu fram í Laugardalnum og nágrenni hans en einnig í Egilshöll, á Skólavörðustíg og víðar.

Íþróttagreinarnar sem keppt er í á leikunum eru mjög fjölbreyttar: áhaldafimleikar, badminton, borðtennis, bogfimi, dans, frjálsíþróttir, hjólreiðar, júdó, karate, keila, kraftlyftingar, listhlaup á skautum, ólympískar lyftingar, skotfimi, skylmingar, skvass og sund.

Keppnisdagskráin skiptist niður á tvær helgar en einnig eru hátíðir í Laugardalshöllinni og ráðstefna um snemmbæra afreksþjálfun barna hluti af dagskránni. Miðasala á leikana er hafin á midi.is.

Almenningi gefst ekki aðeins kostur á að vera áhorfendur á leikunum því hluti af þeim er Norðurljóshlaupið, WOW Northern Lights Run, þar sem allir geta tekið þátt. Um er að ræða skemmtiskokk um miðbæ Reykjavíkur þar sem þátttakendur hlaupa með upplýstan varning og eru hluti af glæsilegri ljósasýningu segir í tilkynningu frá Íþróttabandalagi Reykjavíkur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert