[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Markaður

info Uppl. um fyrirtæki:

Myntbreyta

Mynt Fjárhæð
ISK - Íslensk króna  ISK
USD - Bandaríkjadalur  USD
EUR - Evra  EUR
GBP - Sterlingspund  GBP
CAD - Kanadadalur  CAD
DKK - Dönsk króna  DKK
NOK - Norsk króna  NOK
SEK - Sænsk króna  SEK
CHF - Svissneskur franki  CHF
JPY - Japanskt jen  JPY
Heimild: Arion banka

Tenglar

Innlendir
Erlendir
Vextir
Verðbréfasjóðir
Vísitölur

Í samstarfi við Arion banka

Viðskipti | Morgunblaðið | 23.5.2002 | 05:55

Teymi A/S yfirtekur danskt hugbúnaðarfyrirtæki

Teymi A/S hefur gengið frá yfirtöku á danska hugbúnaðarfyrirtækinu PROGREZ, sem hefur undanfarin ár verið í fremstu röð þar í landi hvað snertir umsjón og rekstur á Oracle-gagnagrunnum og stöðluðum viðskiptahugbúnaði frá Navision, einkum Concorde/XAL og Axapta. Samningurinn hefur meðal annars í för með sér að Teymi A/S fær um eitt hundrað nýja viðskiptavini og samstarfsaðila, auk þess sem það ræður til sín alla starfsmenn PROGREZ.

Elvar Steinn Þorkelsson, forstjóri Teymis, undirritaði yfirtökusamninginn í Kaupmannahöfn mánudaginn 13. maí.

"Með þessari yfirtöku á PROGREZ og nýlegum viðskiptasamningum sem Teymi A/S hefur gert við mörg skandinavísk stórfyrirtæki erum við að treysta stöðu fyrirtækisins til langframa. Teymi A/S hefur á skömmum tíma getið sér orð fyrir að vera einn öflugasti og traustasti samstarfsaðili Oracle í Danmörku, einkum í kringum þjónustu á Oracle-hugbúnaði. Við erum hreykin af því orðspori," sagði Elvar Steinn við undirritun samningsins.

Sérhæfing PROGREZ fólst einkum í vinnu með samtvinnuð umhverfi Oracle-lausna og Navision-viðskiptahugbúnaðar á borð við Concorde/XAL og Axapta. Fyrirtækið hefur jafnframt þróað og selt hugbúnaðinn OraGuard til nokkurra tuga fyrirtækja á Norðurlöndum, en þar er á ferðinni umsjónar- og eftirlitsbúnaður fyrir Oracle-gagnagrunna. Teymi A/S tekur nú við dreifingarrétti á OraGuard-búnaðinum á Norðurlöndum og að sögn forstjóra Teymis binda menn talsverðar vonir við velgengni í þeim efnum þar og síðar annars staðar í Evrópu.

Meðal viðskiptavina Teymis A/S eru nú TDC Kabel-TV, Expert Danmark, Dansk El-forbund, Debitel, Rosti, Top Toy, Leo Pharmaceutical, Chr. Hansen, Novo Nordisk, Astra Danmark, Glaxo Wellcome / Glaxo Smith&Kline, DBS, Mobilix, Telia og fleiri.

Hjá Teymi A/S starfa nú um tuttugu manns. Áætluð velta fyrirtækisins á yfirstandandi ári er um 230 milljónir króna og reiknað er með hagnaði af starfsemi félagsins.

Nánar í Morgunblaðinu. Smelltu hér til að gerast áskrifandi.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Viðskipti — Fleiri fréttir

Í gær
Fimmtudaginn 18. mars
Miðvikudaginn 17. mars