Ekkert ólöglegt við að leggja fram fé til að fjármagna kaup á stofnfé

Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is
Stefán Hilmarsson, stjórnarmaður í A. Holding, dótturfélagi Baugs, segir að A. Holding hafi lagt fram 1,9 milljarða inn á reikning lögmannsstofunnar Lögmenn Laugardal til þess að ávaxta fjármuni sína, en lögmannsstofan hefur haft milligöngu um kaup á stofnfé í Sparisjóði Hafnarfjarðar (SPH). Hann segir að félagið hafi fengið lögfræðinga til að meta hvort slík fjármögnun samrýmist lögum og niðurstaðan hafi verið að hún geri það.

"Við erum með lögfræðiálit um að það sé ekkert óheimilt við að leggja fram fjármuni til fjármögnunar. Það er ekkert sem bannar fjármögnun á hlutafé eða stofnfé. Við sjáum slíkt gerast í viðskiptalífinu á hverjum degi. Það koma saman menn á hverjum degi til að eiga viðskipti og þá þarf alltaf að fjármagna hluti," sagði Stefán.

Hann sagðist aðspurður ekki óttast rannsókn Fjármálaeftirlitsins eða lögreglu á hlut A. Holding í þessu máli. Hann tók jafnframt fram að forsvarsmenn A. Holding hefðu ekki verið kallaðir til skýrslutöku hvorki hjá Fjármálaeftirlitinu né lögreglu vegna þessa máls og félagið hefði ekki fengið tilkynningu um að það væri grunað um lögbrot.

Útiloka ekki sameiningu við annan sparisjóð

Stjórn Sparisjóðs Hafnarfjarðar kom saman til fundar í gær. Á fundinum var Jón Auðunn Jónsson lögmaður kosinn formaður stjórnar, en ný stjórn var kosin á aðalfundi í síðasta mánuði. Matthías Páll Imsland, hjá Fons eignarhaldsfélagi, var kosinn varaformaður.

Jón Auðunn sagði að á fundinum hefði verið farið yfir skyldur stjórnarmanna. Rannsókn Fjármálaeftirlitsins hefði lítið verið rædd, enda lægju engin erindi fyrir stjórninni varðandi það mál.

"Við ræddum hins vegar að svo virðist sem bréf sem voru skrifuð til stjórnar Sparisjóðs Hafnarfjarðar séu komin í hendur á blaðamanni. Okkur finnst það vera mjög óþægilegt. Og það sem meira er virðast fundargerðir stjórnar sparisjóðsins vera komnar út í bæ, en þar er verið að fjalla hin ýmsu mál. Þetta er auðvitað mjög óheppilegt. Við munum snúa okkur til Fjármálaeftirlitsins með það mál," sagði Jón Auðunn.

Hann sagði að stjórn SPH hefði ekki markað neina stefnu varðandi breytingu á starfsemi sjóðsins. Stjórnin væri opin fyrir því að gera breytingar. "Það eina sem ég sé fyrir mér er að sameina Sparisjóð Hafnarfjarðar einhverjum öðrum sparisjóði, en það hefur ekkert verið ákveðið í þeim efnum."

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK