Fjarskiptafyrirtæki ásakað um milljarða fjársvik
Japanska lögregla gerði áhlaup inn í fjarskiptafyrirtækið Kinmirai Tsushin í morgun vegna gruns um að það hafi svikið 40 milljarða jena, 23,4 milljarða króna út úr um þrjú þúsund fjárfestum. Samkvæmt upplýsingum frá ráðuneyti samskiptamála lofaði fyrirtækið fjárfestum miklum hagnaði.
Tugir lögregluþjónanna fóru inn í höfuðstöðvar Kinmirai Tsushin, sem býður upp á netsímaþjónustu, í morgun, samkvæmt fréttum í japönsku sjónvarpi. Samkvæmt fréttum leitaði lögregla að forstöðumanni fyrirtækisins, Masaru Ishii, án árangurs. Enginn svaraði í síma hjá félaginu í morgun.
Samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu námu tekjur Kinmirai Tsushin á síðasta ári 18 milljörðum jena en tekjur af fjarskiptaþjónustu námu einungis 300 milljónum jena.
Til baka







Senda inn efni