[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Markaður

info Uppl. um fyrirtæki:

Myntbreyta

Mynt Fjárhæð
ISK - Íslensk króna  ISK
USD - Bandaríkjadalur  USD
EUR - Evra  EUR
GBP - Sterlingspund  GBP
CAD - Kanadadalur  CAD
DKK - Dönsk króna  DKK
NOK - Norsk króna  NOK
SEK - Sænsk króna  SEK
CHF - Svissneskur franki  CHF
JPY - Japanskt jen  JPY
Heimild: Arion banka

Tenglar

Innlendir
Erlendir
Vextir
Verðbréfasjóðir
Vísitölur

Í samstarfi við Arion banka

mbl.is

Viðskipti | mbl.is | 27.9.2007 | 08:24

FL Group ætlar ekki að bjóða í Pret a Manger

FL Group ætlar ekki að taka þátt í kapphlaupi um að kaupa veitingakeðjuna Pret a Manger. Þetta kemur fram í breska dagblaðinu Independent í dag. Þar kemur fram að tveir bítist um að eignast keðjuna, Lion Capital og Bridgepoint Capital.

Í Independent kemur fram að heimildir blaðsins hermi að ekki sé vitað hvers vegna FL Group hafi hætt við en talið er að væntanlegt kaupverð verði allt að 450 milljónir punda.

Pret a Manger var stofnað árið 1986 af Sinclair Beecham og Julian Metcalfe. Árið 2001 keypti veitingahúsakeðjan McDonald's þriðjung í fyrirtækinu á 50 milljónir punda en sá hlutur er nú metinn á 150 milljónir punda. Fjárfestingabankinn Rothschild annast útboðið á Pret a Manger. Fyrirtækið rekur um 150 staði og er vel þekkt í Bretlandi sem og Hong Kong og New York.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Viðskipti — Fleiri fréttir

Í dag
Laugardaginn 20. mars
Föstudaginn 19. mars
Fimmtudaginn 18. mars