Veltumet á skuldabréfamarkaði

Velta á skuldabréfamarkaði nam rúmlega 42,5 milljörðum króna í dag og hefur aldrei verið meiri frá upphafi. Samhliða lækkaði ávöxtunarkrafa verðtryggðra bréfa um 8-15 punkta og óverðtryggðra bréfa um 39-91 punkta.

Greiningardeild Kaupþings segir, að þessi áköfu viðskipti endurspegli án efa breyttar vaxtavæntingar markaðarins um hraðara vaxtalækkunarferli hjá Seðlabanka Íslands, sökum þess að íslenskt efnahagslíf muni nú kólna hraðar en áður var gert ráð fyrir. Þá megi ef til vill greina áhrif af nýjustu tölum um veltu á fasteignamarkaði, sem birtust í lok síðustu viku, sem sýna að viðskipti á fasteignamarkaði séu að dragast fremur hratt saman. 

Þá megi leiða getum að því, að fjárfestar séu farnir að leita frá hlutabréfum yfir í skuldabréf þar sem hlutabréfamarkaður hafi gefið töluvert eftir á síðustu dögum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK