[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Markaður

info Uppl. um fyrirtæki:

Myntbreyta

Mynt Fjárhæð
ISK - Íslensk króna  ISK
USD - Bandaríkjadalur  USD
EUR - Evra  EUR
GBP - Sterlingspund  GBP
CAD - Kanadadalur  CAD
DKK - Dönsk króna  DKK
NOK - Norsk króna  NOK
SEK - Sænsk króna  SEK
CHF - Svissneskur franki  CHF
JPY - Japanskt jen  JPY
Heimild: Arion banka

Tenglar

Innlendir
Erlendir
Vextir
Verðbréfasjóðir
Vísitölur

Í samstarfi við Arion banka

Viðskipti | Morgunblaðið | 16.9.2008 | 05:30

Sjóðirnir selja grimmt

Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is

Hlutur íslenskra lífeyrissjóða í hlutabréfum og hlutabréfasjóðum minnkaði um tæpa 26 milljarða í júlí á þessu ári, samkvæmt hagtölum Seðlabankans.

Samkvæmt upplýsingum frá Seðlabankanum skýrist þriðjungur minnkunar á endurmati, þ.e. verðrýrnunar á hlutabréfamörkuðum, en tveir þriðju í seldum hlutabréfum.

„Við sofum alveg róleg á nóttunni yfir þessum tölum,“ segir Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða. Hrafn segir að það sem skipti mestu máli fyrir rekstur lífeyrissjóða sé tryggingafræðileg staða sjóðanna til lengri tíma. „Tryggingafræðileg staða um síðustu áramót var mjög góð og hún kemur ekki til skoðunar að nýju fyrr en í vor,“ segir Hrafn.

Allar líkur á neikvæðri ávöxtun

Hrafn segir allar líkur á að ávöxtun lífeyrissjóða verði neikvæð á þessu ári þótt engar tölur liggi fyrir ennþá. „Innlendur hlutabréfamarkaður hefur verið afar slakur. Krónan hefur hins vegar veikst mjög mikið gagnvart dollar sem er aðalgjaldmiðillinn sem lífeyrissjóðirnir eiga í. Það hefur því aukið eignir sjóðanna.“

Alfreð Hauksson, sjóðsstjóri Almenna lífeyrissjóðsins, segir að sjóðurinn hafi losað nokkurt magn af erlendum hlutabréfum í litlum þrepum samhliða veikingu krónunnar undanfarna mánuði. „Miðað við fjárfestingarstefnu höfum við verið með undirvigt í erlendum hlutabréfum undanfarin ár,“ segir Alfreð.

Tryggvi Tryggvason, forstöðumaður eignastýringar hjá Gildi lífeyrissjóði, segir að sjóðurinn hafi lítillega innleyst hlutdeildarskírteini í erlendum hlutabréfasjóðum í júlímánuði.

Í hnotskurn
» Hlutur lífeyrissjóða í hlutabréfum minnkaði um 26 milljarða, þar af 24 milljarða í erlendum hlutabréfasjóðum.
» Landssamtök lífeyrissjóða benda á að lífeyrissjóðirnir fjárfesti til langtíma og eigi að standa af sér niðursveifluna.
» Sjóðfélagalán lífeyrissjóðanna jukust um 4,6 milljarða í júlí. Samkvæmt LL hafa lántakendur snúið sér í auknum mæli til lífeyrissjóðanna.

Nánar í Morgunblaðinu. Smelltu hér til að gerast áskrifandi.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Viðskipti — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Miðvikudaginn 17. mars