Átelja harðlega vinnubrögð Seðlabanka

Stjórn Stoða hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem vinnubrögð bankastjórnar Seðlabankans eru átalin harðlega. Það sé mat stjórnar Stoða, að Seðlabankinn hafi haft aðra og farsælli kosti í stöðunni en að taka Glitni yfir en Seðlabankinn og ríkisstjórnin hafi stillt stjórn og stærstu eigendum Glitnis upp við vegg í skjóli nætur og þeir hafi því enga kosti átt aðra en að samþykkja tillöguna.

Yfirlýsingin er eftirfarandi:

„Í kjölfar þvingaðrar yfirtöku Seðlabankans og ríkisvaldsins á Glitni hefur stjórn Stoða óskað eftir greiðslustöðvun. Ef yfirtakan verður samþykkt á hluthafafundi Glitnis lætur nærri að eignarhlutur Stoða í Glitni lækki um 50 milljarða króna. Eigið fé Stoða nam um 87 milljörðum króna við lok annars ársfjórðungs og fjárhagsstaða Stoða er því í miklu uppnámi.
 
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur samþykkt beiðni stjórnar félagsins og veitt heimild til greiðslustöðvunar til 20. október 2008. Stjórn og stjórnendur Stoða munu á næstu dögum og vikum vinna að því að vernda hagsmuni félagsins og hluthafa þess, með öllum tiltækum ráðum.
 
Stjórn Stoða átelur harðlega vinnubrögð bankastjórnar Seðlabankans.
 
Ljóst má vera að Glitnir þurfti á aðstoð Seðlabankans að halda vegna lausafjárvanda sem bar brátt að. Rekstur Glitnis hefur hins vegar verið með ágætum, bankinn skilað góðum hagnaði og eigið fé Glitnis nam um 200 milljörðum króna um mitt þetta ár. Það er mat stjórnar Stoða að Seðlabankinn hafi haft aðra og farsælli kosti í stöðunni en að taka Glitni yfir. Harkalegt inngrip Seðlabankans er ekkert annað en eignaupptaka þar sem hluthafar Glitnis tapa vel á annað hundrað milljörðum króna. Seðlabankinn og ríkisstjórnin stilltu stjórn og stærstu eigendum Glitnis upp við vegg í skjóli nætur og þeir áttu því enga kosti aðra en að samþykkja tillöguna. Atburðarásin var með þeim hætti að ekkert tóm gafst til að leita annarra lausna, frekar en að meta heildaráhrif aðgerðanna á íslenskt fjármálalíf. Stjórn Stoða harmar þessar aðgerðir og lýsir fullri ábyrgð á afleiðingum þeirra á hendur bankastjórnar Seðlabankans."

Í stjórn Stoða sitja Ingibjörg Pálmadóttir, sem er stjórnarformaður, Eiríkur Jóhannesson, sem er varaformaður stjórnar, og Árni Hauksson, Katrín Pétursdóttir og Þorsteinn M. Jónsson.  Einar Þór Sverrisson og Þórður Bogason eru varamenn í stjórninni.   

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK