Vextir gætu hækkað meira

Greining Glitnis telur ekki útilokað að stýrivextir Seðlabankans verði hækkaðir frekar á næstu vikum. Meginatriðið í því sé hvernig muni ganga að fleyta krónunni.

Í Morgunkorni Glitnis segir, að hækkun stýrivaxta Seðlabankans nú þurfi ekki að koma neinum á óvart. Hún hafi verið viðbúin í ljósi aðkomu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF) að efnahagsstjórnuninni hér á landi. Vaxtahækkunin nú sé merki þess, að peningastjórnunin sé komin í hendur sérfræðinga IMF og að minnsta kosti hafi þessi vaxtaákvörðun verið þeirra.

„Innlend eftirspurn þarf ekki hjálp við að hverfa þessa daganna. Atvinnuleysið hefur stigið hratt undanfarið, væntingar minkað umtalsvert og samdráttur er verulegur í allri neyslu og fjárfestingu. Vaxtahækkunin er því ekki til að hjálpa til við að berja þróttinn úr innlendri eftirspurn," segir í Morgunkorni.

Glitnir segir, að markmiðið, sem IMF setti fram með ríkisstjórninni nú fyrir helgi, sé að halda krónunni stöðugri. Með þeim hætti ætti verðbólgan að hjaðna hratt á næstunni. Vaxtahækkunin sé ætluð til þessa og hluti af áætlun IMF og stjórnvalda að aflétta hömlum á gjaldeyrismarkaði og fleyta krónunni á næstunni en með háum vöxtum sé líklegra að hún verði varin frekara falli.

„Það er ekki útilokað að stýrivextir Seðlabankans verði hækkaðir frekar á næstu vikum. Meginatriðið í því er hvernig muni ganga að fleyta krónunni. Bankinn segir að framleiðsluslaki og jafnvægi eða afgangur í utanríkisviðskiptum munu stuðla að hækkun á gengi krónunnar að því tilskildu að traust hafi skapast á gjaldeyrismarkaði. Gangi það eftir að halda krónunni stöðugri og jafnvel styrkja hana má reikna með því að verðbólgan hjaðni hratt þegar kemur fram á næsta ár. Reikna má með því að bankinn muni halda vöxtum háum vel fram yfir áramót en forsendur fyrir hraðri lækkun stýrivaxta mun skapast með ört hjaðnandi verðbólgu á næsta ári," segir Greining Glitnis.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK