[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Markaður

info Uppl. um fyrirtæki:

Myntbreyta

Mynt Fjárhæð
ISK - Íslensk króna  ISK
USD - Bandaríkjadalur  USD
EUR - Evra  EUR
GBP - Sterlingspund  GBP
CAD - Kanadadalur  CAD
DKK - Dönsk króna  DKK
NOK - Norsk króna  NOK
SEK - Sænsk króna  SEK
CHF - Svissneskur franki  CHF
JPY - Japanskt jen  JPY
Heimild: Arion banka

Tenglar

Innlendir
Erlendir
Vextir
Verðbréfasjóðir
Vísitölur

Í samstarfi við Arion banka

Árni Sæberg

Viðskipti | Morgunblaðið | 21.12.2008 | 07:30

Ekkert jafnræði hluthafa VÍS

Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is

Ekki var jafnræði með hluthöfum VÍS þegar VÍS og Exista voru sameinuð. Eignarhaldsfélag Samvinnutrygginga, sem síðar varð hlutafélagið Gift, eignaðist hlut í Exista með sameiningunni. Það gerði líka Hesteyri ehf., sem var að þriðjungi í eigu Samvinnutrygginga, en aðrir eigendur Hesteyrar voru Skinney-Þinganes í eigu Halldórs Ásgrímssonar og fjölskyldu og Fiskiðjan Skagfirðingur.

Þegar stjórn Giftar vildi minnka hlut sinn í Exista kom í ljós að það var ekki hægt, vegna samkomulags við Exista um að ekki yrði selt fyrr en 2008. Hendur Hesteyrar voru hins vegar ekki bundnar og félagið seldi sinn hlut.

Um mitt ár 2006 keypti Exista allt hlutafé VÍS eignarhaldsfélags, móðurfélags Vátryggingafélags Íslands, og greiddi fyrir með hlutum í Exista. Stærsti eigandi VÍS var Kaupþing, með 29,6%, en þá áttu Samvinnutryggingar 25,8%, Hesteyri ehf., 24,7%, Samvinnulífeyrissjóðurinn 10% og Andvaka 5,3% í VÍS.

VÍS hafði orðið til árið 1989 með sameiningu Brunabótafélags Íslands og Samvinnutrygginga. Eignarhaldsfélagið Andvaka bættist í eigendahóp VÍS þegar Lífís varð hluti af félaginu.

Andvaka var að helmingi í eigu Samvinnutrygginga, síðar Giftar, og þá áttu Samvinnutryggingar þriðjung í Hesteyri. Aðrir eigendur Hesteyrar voru Skinney-Þinganes, félag í eigu Halldórs Ásgrímssonar og fjölskyldu, og Fiskiðjan Skagfirðingur, síðar FISK Seafood. Fiskiðjan er dótturfélag Kaupfélags Skagfirðinga, en kaupfélagsstjórinn, Þórólfur Gíslason, var jafnframt stjórnarformaður Samvinnutrygginga.

Exista átti fyrir 20% í VÍS, en verðmæti hlutafjárins, sem aðrir eigendur fengu í Exista, var metið á um 53 milljarða króna. Eftir sameiningu Exista og VÍS áttu Samvinnutryggingar 5,7% í Exista og Hesteyri átti önnur 5,7%. Andvaka átti hins vegar 1,6%. Ári síðar, í júní 2007 er tekin ákvörðun um að breyta Eignarhaldsfélaginu Samvinnutryggingum í hlutafélag, sem bera átti nafnið Gift. Eigendur yrðu tryggingatakar í Samvinnutryggingum og Brunabótafélaginu, auk sjálfseignarstofnunarinnar Samvinnusjóðsins.

Á stjórnarfundi í Gift hinn 7. nóvember var eignarhluti félagsins í Exista gerður að umtalsefni. Töldu sumir stjórnarmenn að óvarlegt væri að meira en helmingur eigna Giftar væri í Exista og hlutdeildarfélögum og var lögð fram tillaga um að eignarhlutur Giftar í þessum félögum yrði minnkaður. Samkvæmt fundargerðum, sem Morgunblaðið hefur undir höndum, greindi stjórnarformaðurinn, Þórólfur Gíslason, þá frá „óformlegu samkomulagi“ við Exista um að hlutur Giftar yrði ekki seldur fyrr en á árinu 2008.

Hendur Hesteyrar voru hins vegar ekki bundnar á sama hátt, en eins og áður segir á dótturfélag Kaupfélags Skagfirðinga, sem Þórólfur Gíslason stýrir, þriðjungshlut í Hesteyri. Hinn 22. desember 2006 barst tilkynning til Kauphallarinnar um að Hesteyri hefði selt 1,91% í Exista og var í fjölmiðlum talað um að sölugengið hefði verið 23. Fékk Hesteyri því 4,9 milljarða króna fyrir hlutinn. Eftir söluna átti Hesteyri 3,82% í Exista og voru viðskipti félagsins með hluti í Exista því ekki lengur tilkynningarskyld.

 

Nánar í Morgunblaðinu. Smelltu hér til að gerast áskrifandi.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Viðskipti — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Þriðjudaginn 7. september
Mánudaginn 6. september
Sunnudaginn 5. september
Laugardaginn 4. september
Föstudaginn 3. september