Evran hindraði gjaldþrot Möltu

Höfnin í Valetta, höfuðborg Möltu.
Höfnin í Valetta, höfuðborg Möltu.

Forsætisráðherra Möltu segir í viðtali við þýskt dagblað, að landið væri að öllum líkindum gjaldþrota og stæði mun verr en Ísland ef evrunnar nyti ekki við. Samt hafi Malta ekki enn orðið fyrir barðinu á fjármálakreppunni að neinu ráði.

„Ef evrunnar nyti ekki við væri Malta sennilega mun verr stödd en Ísland: við værum gjaldþrota," segir Lawrence Gonzi   í viðtali við blaðið Frankfurter Allgemeine Zeitung. „Evran forðaði okkur frá því í tíma, hún bjargaði okkur í raun."

Malta var áður með eigin gjaldmiðil, líruna. Gonzi sagði, að gengi hennar hefði verið nokkuð stöðugt en hagkerfi Möltu hefði hins vegar verið afar viðkvæmt fyrir sveiflum á öðrum gjaldmiðlum. Malta tók upp evru í byrjun síðasta árs og hefur til þessa sloppið að mestu við afleiðingar alþjóðlegu fjármálakreppunnar.

„Til allrar hamingju höfum við sloppið til þessa. Bankarnir okkar hafa alltaf haft nægt lausafé og tengjast ekki alþjóðlegum bönkum, sem nú eiga í miklum erfiðleikum," sagði Gonzi við þýska blaðið.

Malta er eyja á Miðjarðarhafi. Þar búa um 450 þúsund manns. Malta gekk í Evrópusambandið árið 2004.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK