OMX Technology AB skrifaði í dag undir samning um sölu á NASDAQ OMX Broker Services á Íslandi. Nýr kaupandi er Fjármálalausnir ehf., sem Þórður Gíslason fer fyrir. Þórður starfaði áður fyrr sem framkvæmdastjóri fyrirtækisins (þá Libra).
Eigendaskipti á fyrirtækinu munu ekki hafa nein áhrif á þjónustustig þess. Núverandi viðskiptavinir hins nýja fyrirtækis munu sem fyrr njóta sérfræðiþekkingar og þjónustu þess í framtíðinni, að því er segir í tilkynningu.
Fyrirtækjaráðgjöf Auðar Capital hf. annaðist söluferlið.