6 sparisjóðir óska eftir aðstoð

Sparisjóðir
Sparisjóðir

Fjármálaráðuneytið hefur móttekið umsóknir frá sex sparisjóðum þar sem óskað er eftir framlagi frá ríkissjóði. Segir í tilkynningu að það Nú þegar stefnir í að starfsemi SPRON og Sparisjóðabankans flytjist til annarra fjármálastofnana megi gera ráð fyrir því að erfiðleikum á íslenskum fjármálamarkaði sé að ljúka.

„Í samræmi við reglur sem gefnar voru út 17. desember s.l. um framlag ríkissjóðs til sparisjóða hefur fjármálaráðuneytið þegar móttekið umsóknir frá Sparisjóði Norðfjarðar, Sparisjóði Keflavíkur, Sparisjóði Vestmannaeyja, Sparisjóði Svarfdæla, Sparisjóði Bolungarvíkur og Byr sparisjóði.

Reglurnar kveða á um að umsóknir fari til umsagnar hjá Fjármálaeftirlitinu og Seðlabanka Íslands. Stefnt er að því að hraða afgreiðslu umsókna og verður eftirfarandi haft að leiðarljósi:

Að tryggðir verði sem fjölbreyttastir valkostir neytenda í fjármálaþjónustu Að fjármálaþjónusta verði í boði um land allt
Að hagræðingu verði náð fram í rekstri sparisjóðanna
Að samfélagslegt hlutverk sparisjóðanna verði tryggt,“ að því er segir í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu.

Nú þegar stefnir í að starfsemi SPRON og Sparisjóðabankans flytjist til annarra fjármálastofnana má gera ráð fyrir því að erfiðleikum á íslenskum fjármálamarkaði sé að ljúka. Þegar lokið verður úrvinnslu umsókna frá sparisjóðunum og afgreiðslu lána ríkissjóðs til annarra fjármálafyrirtækja í tengslum við endurhverf viðskipti er það sannfæring ríkisstjórnarinnar að ekki komi til frekari lokana íslenskra innlánsstofnana, samkvæmt tilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK