Frjálsi sækir um slitameðferð

Stjórn Frjálsa fjárfestingarbankans hf. hefur í dag sótt um slitameðferð til Héraðsdóms Reykjavíkur, segir í tilkynningu.

Þann 21. mars 2009 ákvað Fjármálaeftirlitið að taka yfir vald hluthafafundar SPRON hf., móðurfélags Frjálsa fjárfestingarbankans, og víkja félagsstjórn SPRON frá í heild sinni.

Jafnframt skipaði Fjármálaeftirlitið skilanefnd (nú bráðabirgðastjórn) fyrir SPRON, sem tók við öllum heimildum stjórnar félagsins.

Bráðabirgðastjórn SPRON hefur frá því hún var skipuð unnið að því að framkvæma ákvarðanir Fjármálaeftirlitsins og gætt að því að varðveita eignir samstæðu félagsins og endurskipuleggja rekstur þess með hagsmuni kröfuhafa að leiðarljósi.

Eftir að bráðabirgðastjórn SPRON var skipuð tók hún yfir stjórn Frjálsa fjárfestingarbankans hf. og hefur unnið að endurskipulagningu starfseminnar miðað við breyttar forsendur. Ljóst er að félagið uppfyllir ekki lengur skilyrði laga fyrir áframhaldandi rekstri sem fjármálafyrirtæki og telur stjórn  félagsins nauðsynlegt að óska eftir slitum á félaginu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK