Bandarískir vogunarsjóðir meðal stærstu eigenda Kaupþings?

Kaupþing
Kaupþing mbl.is/Golli

Flest bendir til þess að bandarískir vogunar- og tryggingarsjóðir verði stærstu eigendur Kaupþings þegar efnahagsreikningar ríkisbankanna liggja fyrir í vikulok. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2. Viðræðurnar munu vera á viðkvæmu stigi.

Frestur Fjármálaeftirlitsins til að skila efnahagsreikningunum rennur út á föstudag, 17.júlí. Þá á einnig að vera komið í ljós hvernig bankarnir verði fjármagnaðir og með hvaða hætti kröfuhafar koma að þeim.

Kröfuhafahópurinn samanstendur af skuldabréfaeigendum en hópurinn hefur tekið miklum breytingum frá síðasta hausti. Nú eru bandarískir vogunar- og tryggingarsjóðir fyrirferðamestir í hópi kröfuhafa, í stað evrópskra banka, sér í lagi þýskra.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK