Gates meðal eigenda Magma

Bill Gates
Bill Gates Reuters

Fjárfestingasjóður í eigu Bill Gates, stofnanda Microsoft, er meðal hluthafa Magma Energy. Magma er almenningshlutafélag með nokkrum þúsundum hluthafa, en skráningu félagsins á hlutabréfamarkað í Toronto í Kanada lauk fyrr í sumar.

Sjóður Bill Gates, Cascade Investment, á um 2,5% hlut en Ross Beaty og félag á hans vegum á stærstan hlut, eða um 47%. Cascade Investment er einnig stór hluthafi í silfurnámufyrirtæki á vegum Beatys. Að hans sögn hefur Bill Gates sýnt áætlunum Magma mikinn áhuga. „Ég er stoltur yfir því að Gates er meðal hluthafa en allir hluthafar eru mikilvægir í mínum augum,“ segir Beaty. Hann segist ekki vita til þess að nokkrir fjárfestar frá Íslandi séu í hluthafahópnum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK