McDonald's hættir - Metro tekur við
Bloggað um fréttina
-
Benedikta EGott - frábært - bara burt McDonald's ! Íslenskt
-
Jóna Kolbrún GarðarsdóttirÍslenskt já takk
-
Sigurður ÞorsteinssonMetro þrælgott nafn.
-
Garðar Þór BragasonHúrra! húrra, húrra!
-
Jens GuðHvar lásu menn fyrst um að McDonald´s væri að
-
Friðrik Hansen GuðmundssonAllt jákvætt við það að McDonald´s hættir á
-
Brjánn GuðjónssonHroðbjóður hverfur
-
Gunnar GunnarssonFarið hefur fé betra!
-
Jóhann Frímann Traustason"Alþjóðlegi" svipur Reykjavíkur að hverfa .
-
Ívar GunnarssonBíddu, var kjötið ekki íslenskt?
-
Þórhallur HeimissonDýrasti Macdonalds í heimi horfinn á braut.
-
Hrafn ArnarsonEngir McDonalds hamborgar lengur.
-
VelvakandiHvað er þetta Metro??
-
Páll VilhjálmssonKrónan leggur heimsveldi að velli
-
DagnýÍslenskt - já takk
-
Jóhannes RagnarssonMenningarlegur viðsnúningur
-
Reynir W LordFylkist með verðum hjá þeim eftir breytingar
-
Haraldur HaraldssonMcDonald's hættir - Metro tekur við/Íslenskt
-
Hreinn Ómar SmárasonHvað á maður nú að gera?
-
Haraldur Eyvinds ÞrastarsonMcDonalds hættir rekstri !!
-
Sigurlaug B. GröndalÞetta finnast mér nú bara góðar fréttir!
Lyst ehf. mun um mánaðamótin hætta samstarfi við McDonald's skyndibitakeðjuna, en fyrirtækið rekur þrjá veitingastaði samkvæmt sérleyfi frá McDonald's. Rekstri staðanna verður haldið áfram undir nafninu Metro. Þetta kemur fram í tilkynningu.
Fram kemur að ástæðan fyrir breytingunni sé erfitt efnahagsumhverfi hér á landi. Þar ráði hrun gengis íslensku krónunnar mestu. Lyst ehf. hafi undanfarin ár keypt flest hráefni í McDonald's réttina, kjöt, ost, grænmeti og önnur aðföng af erlendum birgjum, samkvæmt kröfum og stöðlum McDonald's.
Gengishrunið, ásamt háum tollum á innfluttar búvörur, hafi tvöfaldað hráefniskostnað fyrirtækisins og gert afkomuna erfiða. Aðilar hafi ekki trú á að efnahagsaðstæður hér batni nægilega til að rekstur veitingastaða undir merkjum McDonald's verði arðbær til lengri tíma.
Þá kemur fram að Metro-staðirnir muni áfram bjóða svipaðar vörur og áþekkan
matseðil á sambærilegu verði. Áhersla verði lögð á íslenskt hráefni,
gæði og hraða þjónustu eins og áður. Breytingin sé gerð í góðu
samkomulagi við McDonald's.
Veitingastaðirnir á á Suðurlandsbraut, í Kringlunni og á Smáratorgi muni halda áfram undir nýju nafni. Einnig komi fram að 10-15 ný störf verðo til hjá innlendum framleiðendum vegna breytingarinnar. Nautakjöt, kjúklingur, mjólkurvörur, sósur, ís, brauð, grænmeti og umbúðir allt frá innlendum framleiðendum.
Þá segir að viðskiptavinir Metro muni frá og með 1. nóvember geta gengið að svipuðum matseðli og hafi verið á McDonald´s stöðunum.
Til baka







Senda inn efni

