[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Markaður

info Uppl. um fyrirtæki:

Myntbreyta

Mynt Fjárhæð
ISK - Íslensk króna  ISK
USD - Bandaríkjadalur  USD
EUR - Evra  EUR
GBP - Sterlingspund  GBP
CAD - Kanadadalur  CAD
DKK - Dönsk króna  DKK
NOK - Norsk króna  NOK
SEK - Sænsk króna  SEK
CHF - Svissneskur franki  CHF
JPY - Japanskt jen  JPY
Heimild: Arion banka

Tenglar

Innlendir
Erlendir
Vextir
Verðbréfasjóðir
Vísitölur

Í samstarfi við Arion banka

Margeir Pétursson, stofnandi og stjórnarformaður MP Banka.

Margeir Pétursson, stofnandi og stjórnarformaður MP Banka.

Viðskipti | Morgunblaðið | 31.10.2009 | 05:30

MP skoðar málefni Røsjøs

MP banki skoðar nú hvort eitthvað sé á bak við fréttir norsks dagblaðs af athafnamanninum Endre Røsjø, að sögn Margeirs Péturssonar, stjórnarformanns bankans. Til stendur að Røsjø leggi MP banka til nýtt hlutafé og greiði fyrir það 1.400 milljónir króna. Eftir það verði hann næststærsti hluthafi bankans á eftir Margeiri.

Røsjø hefur kært dagblaðið Dagens Næringsliv (DN) til lögreglu fyrir umfjöllun þess um viðskipti hans og norska olíufyrirtækisins DNO. Fullyrðir blaðið jafnframt að Røsjø hafi bæði hótað blaðamanni sem og boðið honum háar fjárhæðir fyrir upplýsingar um heimildarmenn.

Fullyrðir norska blaðið að félag í eigu Røsjøs, Pinemont Securities, hafi haft milligöngu um greiðslur frá DNO til bandaríska erindrekans Peters Galbraiths. Segir jafnframt að DNO hafi greitt Galbraith fyrir að hafa auðveldað fyrirtækinu að fá olíusamninga við stjórnvöld í Kúrdahéruðum Íraks árið 2004.

Tengsl Røsjøs við norska olíufyrirtækið og forstjóra þess, Helga Eide, eru enn nánari samkvæmt frétt DN. Árið 2004 ákvað Eide að ráða Røsjø sem ráðgjafa. Skömmu síðar lánaði félag í eigu Røsjøs, Centennial AS, Eide fimm milljónir norskra króna, andvirði um 110 milljóna íslenskra króna á núvirði.

Lánsféð notaði Eide til að kaupa hlutabréf í DNO, sem ári seinna höfðu nær fjórfaldast í verði. Mun Røsjø hafa boðið blaðamanni DN um 10 milljónir íslenskra króna fyrir upplýsingar um heimildir fréttarinnar, sem hann telur byggða á stolnum gögnum.

Nánar er fjallað  um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.

 

Nánar í Morgunblaðinu. Smelltu hér til að gerast áskrifandi.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Viðskipti — Fleiri fréttir

Í gær
Föstudaginn 19. mars
Fimmtudaginn 18. mars
Miðvikudaginn 17. mars