Kaupþing verður Arion banki
Bloggað um fréttina
-
Ingunn GuðnadóttirARION?????
-
Jóna Kolbrún GarðarsdóttirÚtlenskt nafn á íslenskum banka
-
Ingibjörg Guðrún MagnúsdóttirLeikflétta...
-
Gísli Foster HjartarsonSpillingin heldur áfram!!!!!
-
Marinó Óskar GíslasonLjóta nafngiftin
-
Þorsteinn H. GunnarssonHæpin ályktun hjá stjórnarformanni
-
Ólafur ÓlafssonFremur óþjált nafn "Arion banki"
-
Katrínbankarnir keyra heimilin í þrot
-
Egill Jón KristjánssonOg enn heitir hann Landsbanki.
-
Sigurður HaraldssonSkiptir ekki máli.
-
Sigríður B SvavarsdóttirEn eitt nafnið.
-
Sigurður ÁsgeirssonKúkur verður Skítur
-
Sigurður GunnarssonLesbískur lýruleikari
-
Sigurður SveinssonVel við hæfi.
-
P.Valdimar GuðjónssonGott mál.
-
Þórarinn Þ GíslasonSTEINGELDIR NAFNGIFTA-HUGSUÐIR INNAN BANKANS aRION
-
Jón Aðalsteinn JónssonTel annað nafn betra
-
Árni B. HelgasonStutt ágrip af sögu Arion
-
Kolbrún HilmarsAð skilja við hið gamla?
-
Bergur ThorbergFeluleikur
-
Páll VilhjálmssonArion safnreikningur útrásar
-
Steinunn Friðriksdóttirkjaftæði
-
Njörður HelgasonGrískur var hann.
-
Finnur BárðarsonEndurkoma spilavítis
-
Kjartan BjörgvinssonArion?
Nýi Kaupþing banki mun á morgun skipta um nafn og heita Arion banki. Segir bankinn, að nýja nafnið sé sótt í grískar fornsögur og vísi m.a. til
þrautseigju, samvinnu og endurkomu. Efnt var til samkeppni um nýtt nafn meðal starfsmanna bankans og var nafnið valið úr á þriðja hundrað tillagna.
Í tilkynningu frá bankanum segir, að nýju nafni fylgi ný stefna og gildi. Séu leiðarljós bankans fagmennska, framsækni, umhyggja og tryggð þar sem
viðskiptavinurinn er í forgrunni. Með nýjum áherslum sé verið að svara kröfum viðskiptavina og starfsmanna um breytingar í kjölfar endurskipulagningar bankans. Nýtt nafn muni auk þess koma í veg fyrir misskilning bæði í almennri umræðu og meðal innlendra og erlendra samstarfsaðila bankans.
Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri, segir í tilkynningu að nýtt nafn,
stefna og gildi marki nýtt upphaf hjá bankanum. „Við erum á vissan hátt að segja skilið við hið gamla og ætlum að takast á við þær áskoranir sem eru í samfélaginu af fullum krafti. Markmiðið er að byggja upp traustan, öflugan banka sem vinnur með og fyrir fólkið í landinu.”
Kostnaði vegna breytinganna verður haldið í lágmarki og mun ásýnd útibúa taka breytingum á næstu vikum og endurnýjun á markaðsefni verður unnin á meðan eldri birgðir klárast.
Til baka







Senda inn efni

