JAL jafnvel í þrot
Framkvæmdastjórn japanska flugfélagsins Japan Airlines (JAL) íhugar nú alla þá möguleika sem félagið hefur og er einn þeirra að setja félagið í þrot. JAL fékk nýverið greiðslustöðvun en japanska ríkið þarf væntanlega að bjarga félaginu og ef af því verður þá er það í fjórða skiptið síðan árið 2001. Talsmaður JAL segir að allt verði reynt til þess að forða félaginu frá gjaldþroti.
Meðal aðgerða sem gripið verður til svo hægt verði að rétta rekstur JAL við, er að segja upp þúsundum starfsmanna og fækka áætlunarleiðum verulega.
JAL hefur fengið boð frá bæði American Airlines og Delta Air Lines um fjárhagslegan stuðning gegn því að þau fái minnihlutaeign í JAL. Þykir til mikils að vinna að komast að á Asíumarkaði þar sem JAL er með sterka stöðu.
Til baka







Senda inn efni

