

Sigurður Óli Ólafsson, forstjóri Actavis, ásamt Björgólfi Thor Björgólfssyni, stjórnarformanni. mbl.is/G.Rúnar
Björgólfur að missa Actavis
Bloggað um fréttina
-
Ómar Skapti GíslasonÁtti hann nokkurn tíma fyrirtækið...
-
Magnús Helgi BjörgvinssonÉg veit að það hlakkar í mörgum við þá frétt að
-
Ómar Bjarki SmárasonMá ekki nota þetta til að klára að borga gamla
-
Anna Sigríður GuðmundsdóttirBjörgúlfur að missa ránsfeng!
-
Brynjar JóhannssonNú er mér öllum lokið! !"#$%&/()=
-
Kjartan BirgissonAf hverju var Glitnir ekki búinn að yfirtaka
-
Ragnar Örn EiríkssonEigum við að vorkenna Icesave konungnum eða hvað?
-
Axel Jóhann AxelssonFréttin fer í hring
-
Haugurinn bloggarAð borga eða borga ekki skuldir
-
Helga R. EinarsdóttirHefur hann einhverntíman átt þetta fyrirtæki?
Björgólfur Thor Björgólfsson er að missa lyfjafyrirtækið Actavis frá sér, samkvæmt kvöldfréttum Stöðvar 2. Þar kom fram að engar meiriháttar ákvarðanir séu nú teknar án samráðs við þýska bankann Deutsche bank, einn helsta lánardrottin fyrirtækisins.
Einnig kom þar fram að samkvæmt heimildum fréttastofu Stöðvar 2 lægju nú þegar fyrir drög að samkomulagi um yfirtöku bankans á meirihluta hlutafjár Actavis. Björgólfur yrði áfram hluthafi en í minnihluta. Vitnað var í yfirlýsingu frá Björgólfi Thor, þar sem hann segir að núverandi stjórn fyrirtækisins ráði enn stefnumótun og rekstri Actavis. Engin áform séu uppi um að lánardrottnar breyti skuldum í hlutafé. Actavis hafi átt í mjög góðu samstarfi við lánardrottna um skuldastöðuna og eigi enn.
Til baka







Senda inn efni