[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Markaður

info Uppl. um fyrirtæki:

Myntbreyta

Mynt Fjárhæð
ISK - Íslensk króna  ISK
USD - Bandaríkjadalur  USD
EUR - Evra  EUR
GBP - Sterlingspund  GBP
CAD - Kanadadalur  CAD
DKK - Dönsk króna  DKK
NOK - Norsk króna  NOK
SEK - Sænsk króna  SEK
CHF - Svissneskur franki  CHF
JPY - Japanskt jen  JPY
Heimild: Arion banka

Tenglar

Innlendir
Erlendir
Vextir
Verðbréfasjóðir
Vísitölur

Í samstarfi við Arion banka

Viðskipti | mbl.is | 27.1.2010 | 11:02

Óvissa um efnahagshorfur eykst

Seðlabankinn segir í ársfjórðungsriti sínu Peningamáalum, að óvissa um efnahagshorfur hafi aukist vegna meiri óvissu um framgang efnahagsáætlunar stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Gerir Seðlabankinn nú ráð fyrir 3,4% samdrætti landsframleiðslu á þessu ári en í nóvember spáði bankinn 2,4% samdrætti.

Seðlabankinn segir, að í meginatriðum séu efnahagshorfur svipaðar og í nóvember. Samdrátturinn á síðasta ári hafi veirð minni en áður var talið en á móti verði hann meiri á þessu ári. Efnahagsbatinn verði veikari, einkum vegna seinkunar fjárfestingar tengdrar stóriðju.

Talið er að verðbólga hjaðni meira á fyrsta fjórðungi þessa árs en að hún verði meiri út næsta ár en útlit var fyrir í nóvember, enda hækkun launakostnaðar á framleidda einingu meiri, gengi krónunnar heldur veikara og verðbólguvæntingar hærri.

„Óvissa um efnahagshorfur hefur jafnframt aukist vegna meiri óvissu um framgang efnahagsáætlunar stjórnvalda og  Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Mikilvæg forsenda spárinnar er að þessi óvissa minnki tiltölulega fljótlega, ella eru horfur á því að fjárfesting taki seinna við sér og samdráttur landsframleiðslu og atvinnuleysi verði meiri en hér er spáð," segir í Peningamálum.

Krónan styrkist

Fram kemur, að gengisvísitala krónunnar miðað við þrönga viðskiptavog hafi lækkað um 1,2% frá útgáfu Peningamála í nóvember en á þessu tímabili hafa engin inngrip hafa verið af hálfu Seðlabankans á gjaldeyrismarkaði.

Gengi krónunnar hefur styrkst um 2,7% gagnvart evru á innlendum gjaldeyrismarkaði og verið nánast óbreytt gagnvart Bandaríkjadal. Uppfærð spá gerir ráð fyrir að gengi krónunnar haldist lágt á næstu misserum líkt og í nóvemberspánni. 

Á aflandsmarkaði hefur krónan veikst um 9,6% gagnvart evru frá útgáfu síðustu Peningamála. Seðlabankinn segir, að líklega megi rekja til harðari framfylgdar gjaldeyrishafta frá byrjun nóvembermánaðar fremur en aukinnar svartsýni um gengishorfur.

Hagvöxtur á ný árið 2011

Seðlabankinn segir að verg landsframleiðsla hafi dregist saman um 7,7% á síðasta ári, dragist saman um 3,4% á þessu ári en á árinu 2011 verði 2,6% hagvöxtur og 2,8% árið 2012. 

Bankinn gerir ráð fyrir að gengi evru verði að jafnaði 179,10 krónur á þessu ári, 174,40 krónur árið 2011 og 173,20 krónur árið 2012.

Þá spáir Seðlabankinn því, að verðbólga á þessu ári verði að jafnaði 5,6%, verði 4,3% árið 2011 og 2,2% árið 2012. 

Spáð er 9,5% atvinnuleysi á þessu ári, 9% á næsta ári og 6,8% árið 2012.

Peningamál

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Viðskipti — Fleiri fréttir

Í gær
Föstudaginn 19. mars
Fimmtudaginn 18. mars
Miðvikudaginn 17. mars