[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Markaður

info Uppl. um fyrirtæki:

Myntbreyta

Mynt Fjárhæð
ISK - Íslensk króna  ISK
USD - Bandaríkjadalur  USD
EUR - Evra  EUR
GBP - Sterlingspund  GBP
CAD - Kanadadalur  CAD
DKK - Dönsk króna  DKK
NOK - Norsk króna  NOK
SEK - Sænsk króna  SEK
CHF - Svissneskur franki  CHF
JPY - Japanskt jen  JPY
Heimild: Arion banka

Tenglar

Innlendir
Erlendir
Vextir
Verðbréfasjóðir
Vísitölur

Í samstarfi við Arion banka

Mótmælt í fyrra fyrir utan höfuðstöðvar AIG

Mótmælt í fyrra fyrir utan höfuðstöðvar AIG Reuters

Viðskipti | AFP | 3.2.2010 | 14:59

Reiði vegna bónusgreiðslna AIG

Tryggingarisinn AIG sem bandarísk stjórnvöld þurftu að bjarga á síðasta ári frá gjaldþroti ætlar að hefja greiðslur á bónusum til starfsmanna í dag. Um er að ræða greiðslur upp á 100 milljónir Bandaríkjadala, 12,7 milljarða íslenskra króna. Mikil reiði er meðal almennings í Bandaríkjunum vegna þessa. Ekki er nema ár síðan svipuð áform stjórnenda AIG ollu mikilli reiði meðal stjórnmálamanna í Bandaríkjunum.

Kenneth Feinberg, sem sér um að fara yfir fjármál bandarískra stórfyrirtækja á vegum fjármálaráðuneytisins, sagði í morgunþætti ABC, Good Morning America, að stjórnvöld væru að reyna að stöðva hluta bónusanna en þeir væru hluti af lögbundnum samningum sem standa þurfi við.

Feinberg segist skilja vel reiði almennings en ekki sé hægt að brjóta lög og taka bónusgreiðslurnar af starfsmönnum. 

 

Bandaríkjastjórn kom AIG til bjargar með styrkjum af almannafé þegar fyrirtækið riðaði til falls. Sú ákvörðun félagsins að greiða út kaupauka í mars í fyrra þrátt fyrir að lifa á ríkisstyrkjum vakti almenna reiði í Bandaríkjunum.  Þá samþykktu helstu yfirmenn félagsins að endurgreiða bónusana en ekki er vitað hvað verður úr í ár.


© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Viðskipti — Fleiri fréttir

Í gær
Fimmtudaginn 18. mars
Miðvikudaginn 17. mars