[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Markaður

info Uppl. um fyrirtæki:

Myntbreyta

Mynt Fjárhæð
ISK - Íslensk króna  ISK
USD - Bandaríkjadalur  USD
EUR - Evra  EUR
GBP - Sterlingspund  GBP
CAD - Kanadadalur  CAD
DKK - Dönsk króna  DKK
NOK - Norsk króna  NOK
SEK - Sænsk króna  SEK
CHF - Svissneskur franki  CHF
JPY - Japanskt jen  JPY
Heimild: Arion banka

Tenglar

Innlendir
Erlendir
Vextir
Verðbréfasjóðir
Vísitölur

Í samstarfi við Arion banka

Orkuver HS Orku í Svartsengi.

Orkuver HS Orku í Svartsengi. mbl.is/Ómar

Viðskipti | mbl.is | 8.2.2010 | 10:56

6,8 milljarða hagnaður HS Orku

Hagnaður HS Orku á síðasta ári nam 6,8 milljörðum króna samanborið við tap að upphæð 11,7 milljörðum á árinu 2008. Þegar tekið hefur verið tillit til tekna og gjalda færðra á eigið fé er afkoman í heild jákvæð um um 8,15 milljarða samanborið við tap að upphæð 4,7 milljarða árið áður.

Í tilkynningu frá félaginu segir, að betri afkoma stafi í meginatriðum af  hækkun álverðs og stöðugra gengi íslensku krónunnar sem komi fram í lækkun gengistaps frá árinu 2008.

Samkvæmt ársreikningnum námu heildartekjur HS Orku hf á árinu tæpum 6,3 milljörðum samanborið við 5,4 milljarða árið áður. Segir félagið, að þessa ekjuaukningu megi í meginatriðum rekja til þjónustutekna frá HS Veitum, sem byggi á verksamningi milli fyrirtækjanna. Samsvarandi aukning er þá á kostnaðarhlið fyrirtækisins.

Aðrar tekjur námu 784 milljónum og skapast af sölu lands og  hitaréttinda. 

Framleiðslu- og sölukostnaður nam 4,4 milljörðum samanborið við 3,1 milljarð árið áður. Aukning skapast vegna þjónustu við HS Veitur hf svo og aukningu kostnaðar við framleiðslu og sölu orkunnar. Önnur rekstrargjöld námu 499 milljónum samanborið við 377 milljónir á árinu 2008. Fyrirtækið segir að aukning annarra rekstrargjalda stafi aðallega af sérstakri afskrift þróunarkostnaðar að upphæð 142 milljónir.

Tilkynning HS Orku
 

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Viðskipti — Fleiri fréttir

Í gær
Föstudaginn 19. mars
Fimmtudaginn 18. mars
Miðvikudaginn 17. mars