[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Markaður

info Uppl. um fyrirtæki:

Myntbreyta

Mynt Fjárhæð
ISK - Íslensk króna  ISK
USD - Bandaríkjadalur  USD
EUR - Evra  EUR
GBP - Sterlingspund  GBP
CAD - Kanadadalur  CAD
DKK - Dönsk króna  DKK
NOK - Norsk króna  NOK
SEK - Sænsk króna  SEK
CHF - Svissneskur franki  CHF
JPY - Japanskt jen  JPY
Heimild: Arion banka

Tenglar

Innlendir
Erlendir
Vextir
Verðbréfasjóðir
Vísitölur

Í samstarfi við Arion banka

Hlutabréfavísitölur lækkuðu á Wall Street í síðustu viku.

Hlutabréfavísitölur lækkuðu á Wall Street í síðustu viku. AP

Viðskipti | mbl.is | 8.2.2010 | 17:32

Lækkanir á erlendum mörkuðum

Í síðustu viku héldu erlend hlutabréf áfram að lækka á Wall Street, á Asíumörkuðum og í helstu kauphöllum Evrópu. Ríkir nú aukinn ótti meðal fjárfesta vegna mikils fjárlagahalla í löndum eins og Grikklandi, Spáni og Portúgal, að því er segir í Markaðsfréttum Íslenskra verðbréfa hf.

Frá Bandaríkjunum bárust meðal annars þær fréttir að atvinnuleysi reyndist vera 9,7% í janúar en var 10% í desember. Markaðnum hefur verið ýtt áfram með opinberum aðgerðum og óttast margir að nú fari að hægja á þegar innspýtingin fer að minnka. Frá áramótum hafa helstu vísitölur í Bandaríkjunum lækkað um 4-6% sem er mun minni lækkun en á helstu vísitölum í Evrópu.

Danska hlutabréfavísitalan OMXC20 lækkaði um eitt prósent í síðustu viku en atvinnuleysi hefur farið ört vaxandi í Danmörku. Frá áramótum hefur danski markaðurinn hins vegar staðið sig vel og hækkað um rúm 4%. Á sama tíma lækkaði norska hlutabréfavísitalan OBX um rúm þrjú prósent og hefur þá lækkað um rúm 6% frá áramótum. Segir í Markaðsfréttunum að í Noregi hafi menn áhyggjur af fasteignamarkaðinum og óttast að þar sé að myndast fasteignabóla sem komi til með að springa eins og aðrar slíkar bólur.


© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Viðskipti — Fleiri fréttir

Laugardaginn 20. mars
Föstudaginn 19. mars
Fimmtudaginn 18. mars
Miðvikudaginn 17. mars