Nýrri útgáfu Boeing 747 reynsluflogið
Bandarísku flugvélaverksmiðjurnar Boeing ætla að reynslufljúga nýrri útgáfu af Boeing 747 risaþotu í kvöld. Um er að ræða 747-8 fragtflugvél, sem til stendur að afhenda flugfélaginu Cargolux í Lúxemborg þegar fram líða stundir en Cargolux hefur pantað 10 slíkar vélar hjá Boeing.
Að sögn talsmanna Boeing lét vélin vel að stjórn þegar henni var ekið á jörðu niðri á laugardag á Paine Field flugvellinum í Everett í Washingtonríki skammt frá höfuðstöðvum fyrirtækisins.
Boeing heldur því fram, að 747-8 fragtvélarnar muni draga úr rekstrarkostnaði flugfélaga og jafnframt muni hún menga mun minna en núverandi flugvélar. Flutningarýmið er 16% meira en í 747-400 fragtvélum og hún eyðir einnig 16% minna eldsneyti.
Boeing er einnig að þróa útgáfu af vélinni fyrir farþegaflutninga og nefnist hún 747-8 Intercontinental. Notuð er svipuð tækni og verður í 787 Dreamliner flugvélunum, sem brátt verða afhentar nýjum eigendum.
Upphaflega stóð til að afhenda nýju vélarnar sl. haust en ýmis vandamál hafa komið upp í framleiðslunni og einnig hafa verkföll sett strik í reikninginn. Nú stendur til að afhenda fyrstu 747-8 fragtvélarnar undir lok ársins.
Cargolux var stofnað árið 1970 af Íslendingum og Lúxemborgarbúum og var um tíma dótturfélag Loftleiða. Enn starfa margir íslenskir flugmenn hjá félaginu.
Til baka







Senda inn efni

