[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Markaður

info Uppl. um fyrirtæki:

Myntbreyta

Mynt Fjárhæð
ISK - Íslensk króna  ISK
USD - Bandaríkjadalur  USD
EUR - Evra  EUR
GBP - Sterlingspund  GBP
CAD - Kanadadalur  CAD
DKK - Dönsk króna  DKK
NOK - Norsk króna  NOK
SEK - Sænsk króna  SEK
CHF - Svissneskur franki  CHF
JPY - Japanskt jen  JPY
Heimild: Arion banka

Tenglar

Innlendir
Erlendir
Vextir
Verðbréfasjóðir
Vísitölur

Í samstarfi við Arion banka

Viðskipti | mbl.is | 9.2.2010 | 07:28

Mikið tap á rekstri SAS

Tap á rekstri norræna flugfélagsins SAS nam nærri 3 milljörðum sænskra króna, jafnvirði 52 milljarða íslenskra króna. Þetta er mun verri afkoma en sérfræðingar bjuggust við en þeir höfðu spáð um 2 milljarða sænskra króna tapi. 

Á síðasta ársfjórðungi nam tap á rekstrinum 1,52 milljörðum sænskra króna fyrir skatta samanborið við 360 milljóna króna tap á sama tímabili árið 2008.

SAS boðaði jafnframt í morgun, að farið yrði í nýtt hlutafjárútboð þar sem aflað verði 5 milljarða sænskra króna hlutafjár til að styrkja lausafjárstöðuna og  reksturinn. Að sögn félagsins nýtur hlutafjáraukningin stuðnings norrænu ríkjanna þriggja, sem eiga hlut í félaginu, Svíþjóðar, Noregs og Danmerkur, og einnig sænsku Wallenberg fjölskyldunnar, sem er stærsti hluthafinn þar fyrir utan.

Að sögn fréttavefjar Børsen liggja fyrir nýjar sparnaðaráætlanir sem eiga að spara samtals 7,3 milljarða sænskra króna á þessu og næstu árum.  M.a. stendur til að semja við flugmenn og annað starfsfólk um launalækkanir.   Þá á að segja upp um 650 starfsmönnum.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Viðskipti — Fleiri fréttir

Í gær
Miðvikudaginn 17. mars