[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Markaður

info Uppl. um fyrirtæki:

Myntbreyta

Mynt Fjárhæð
ISK - Íslensk króna  ISK
USD - Bandaríkjadalur  USD
EUR - Evra  EUR
GBP - Sterlingspund  GBP
CAD - Kanadadalur  CAD
DKK - Dönsk króna  DKK
NOK - Norsk króna  NOK
SEK - Sænsk króna  SEK
CHF - Svissneskur franki  CHF
JPY - Japanskt jen  JPY
Heimild: Arion banka

Tenglar

Innlendir
Erlendir
Vextir
Verðbréfasjóðir
Vísitölur

Í samstarfi við Arion banka

Frá athafnasvæði Íslandspósts á Reyðarfirði.

Frá athafnasvæði Íslandspósts á Reyðarfirði.

Viðskipti | mbl.is | 9.2.2010 | 18:15

Misnotaði sennilega markaðsráðandi stöðu

Íslandspóstur misnotaði sennilega markaðsráðandi stöðu sína í samskiptum við Póstmarkaðinn, þegar síðarnefnda fyrirtækið leitaði samninga við Íslandspóst. Kemur þetta fram í bráðabirgðaákvörðun Samkeppniseftirlitsins, sem birt var í dag.

Tilkynning Samkeppniseftirlitsins:

„Með bráðabirgðaákvörðun í dag hefur Samkeppniseftirlitið mælt fyrir um að Íslandspósti sé skylt að semja við Póstmarkaðinn um móttöku og dreifingu pósts í samræmi við gjaldskrá Íslandspósts fyrir stórnotendur og skilmála hennar. Skulu viðskiptaskilmálar vera almennir þannig að fyrirtæki sem eiga í samskonar viðskiptum við Íslandspóst njóti sömu kjara.

Samkeppniseftirlitið kemst í bráðabirgðaákvörðun sinni að þeirri niðurstöðu að sennilegt sé að Íslandspóstur hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína í samskiptum sínum við Póstmarkaðinn, þegar síðarnefnda fyrirtækið leitaði samninga víð Íslandspóst. Er talið í ákvörðuninni að Íslandspóstur hafi með skilmálum sínum gagnvart Póstmarkaðnum mismunað aðilum með ólögmætum hætti. Jafnframt er talið að skilmálarnir geti falið í sér sölusynjun. Þykir nægilega í ljós leitt að um hafi verið að ræða óeðlileg viðbrögð markaðsráðandi fyrirtækis við mögulegri samkeppni.

Að mati Samkeppniseftirlitsins má ætla að um sé ræða alvarleg brot sem eru til þess fallin að raska samkeppni. Einnig er nægilega líklegt að bið eftir endanlegri ákvörðun Samkeppniseftirlitsins geti leitt til röskunar á samkeppni. Af þeim sökum er talið nauðsynlegt að beina þeim fyrirmælum til Íslandspósts að semja við Póstmarkaðinn á tilteknum forsendum.

Ákvörðun Samkeppniseftirlitsins gildir til 1. ágúst 2010. Ef ekki hefur verið tekin ákvörðun í málinu innan þess frests verður tekin afstaða til þess hvort nauðsynlegt sé að framlengja þessa bráðabirgðaákvörðun til þess að markmið hennar náist.“


© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Viðskipti — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Miðvikudaginn 17. mars