
Stuðningur er innan ESB við að heimilt verði að nota kjötlím í matvælum. AP
Styðja notkun á kjötlími
Starfsnefnd Evrópusambandsins um matvæli og dýraheilbrigði styður að reglum verði breytt þannig að kjötvinnslum verði heimilað að nota hvatann Thrombin (ensím) – hvati sem í daglegu tali er nefndur kjötlím.
Thrombin finnst í blóði dýra og hefur þá verkun að það bindur saman kjöt. Þrátt fyrir að hvatinn teljist skaðlaus fólki, þá eru mjög deildar meiningar um ágæti notkunar hans, þar sem með notkun hvatans má umbreyta vinnslukjöti í næsta vel útlítandi steikur. Engin breyting verður þó á næringargildi vinnslukjötsins.
Á vef Landssambands kúabænda, naut.is, segir að á næstu þremur mánuðum verði ákveðið hvort heimildin til notkunar á kjötlími verði endanleg staðfest. Aðeins tvö lönd hafi greitt atkvæði á móti notkun kjötlíms og því séu allar líkur á því að frá vorinu 2011 þurfi hver og einn neytandi að rýna vel í pakkningarnar í Evrópusambandinu.
Til baka







Senda inn efni