

Yuji Yokoyama, framkvæmdastjóri Toyota (í miðjunni) buktar sig eftir að hafa afhent yfirmanni í samgönguráðuneytinu í Tókýó tilkynningu um innköllun Priusbíla í dag. reuters
Toyota innkallar Prius í stórum stíl
Toyota hefur ákveðið að innkalla um 200.000 Prius tvinnbíla sem seldir voru í Japan í fyrra vegna galla í bremsum. Óljóst er hvort að bílar seldir utan Japans verði einnig innkallaðir, en líklegt þykir að af því verði einnig.
Prius var mest selda einstaka bílgerðin í
Japan í fyrra. Hann er jafnframt söluhæsti tvinnbíllinn á heimsvísu undanfarin ár.
Kvartanir hafa borist undan bremsum Priusbílsins bæði í Japan og í Bandaríkjunum. Lýsa þær sér í því að bremsurnar hafi hætt að virka augnablik þegar ekið var eftir hrjúfum og ósléttum vegum.
Talið er að bremsugallinn eigi við um allt að 270.000 bíla sem seldir hafa verið í Japan og Bandaríkjunum frá í maí í fyrra. Toyota skellir skuldinni á galla í hugbúnaði stýrikerfis bremsubúnaðarins.
Til baka







Senda inn efni