Ríkið greiðir upp Norðurlandalánin

Ríkið og Seðlabankinn hafa gert upp lán við Norðurlöndin sem …
Ríkið og Seðlabankinn hafa gert upp lán við Norðurlöndin sem tekið var 2008. Ómar Óskarsson

Ríkissjóður Íslands og Seðlabanki Íslands endurgreiða fyrirfram í dag lán frá Norðurlöndunum sem tekin voru í tengslum við efnahagsáætlun stjórnvalda sem studd var af AGS árið 2008. Um er að ræða endurgreiðslu að fjárhæð 735 milljónir evra, jafnvirði um 114 milljarða, sem voru upphaflega á gjalddaga á árunum 2019, 2020 og 2021. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Seðlabankans, en með þessu er að fullu búið að endurgreiða lán frá Norðurlöndunum sem samtals námu 1.775 milljónum evra. 

Ákvörðun um fyrirframgreiðslu kemur í framhaldi af skuldabréfaútgáfu ríkissjóðs á Evrópumarkaði sem tilkynnt var um 8. júlí síðastliðinn að fjárhæð 750 milljónir evra, eða jafnvirði 116 milljarða. Í tilkynningunni kemur fram að útgáfan hafi veitt svigrúm til að endurgreiða Norðurlandalánin, sem bera óhagstæðari vexti. Útgáfa ríkisjóðs og endurgreiðsla lána nú hefur ekki áhrif á hreinar skuldir ríkissjóðs og Seðlabankans saman, en heildarskuldir ríkissjóðs hækka um 1,9% af VLF aðallega vegna þess að hluta lántökunnar er varið til að greiða niður skuldir sem færðar voru hjá Seðlabankanum. Stærð gjaldeyrisforða er óbreytt vegna ofangreindrar skuldastýringar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK