S&P breytir horfum TM í jákvæðar

Tryggingamiðstöðin.
Tryggingamiðstöðin. Eggert Jóhannesson

Standard & Poors (S&P) hefur í dag breytt horfum sínum fyrir Tryggingamiðstöðina (TM) úr stöðugum í jákvæðar. Fjárhagsleg styrkleikaeinkunn félagsins BBB- er jafnframt staðfest en það er sama einkunn og S&P hefur veitt langtímaskuldbindingum íslenska ríkisins. Breyting á horfum fyrir TM er gerð í kjölfar þess að S&P breytti horfum sínum fyrir íslenska ríkið í jákvæðar þann 18. júlí,segir í fréttatilkynningu frá TM.

TM hefur frá árinu 2007 verið með styrkleikamat frá S&P, eitt íslenskra tryggingafélaga. Matið veitir TM tækifæri til að sækja vátryggingaviðskipti á erlenda markaði og er því mikilvægur liður í vaxtarmöguleikum félagsins, segir í tilkynningunni. 

Í tilkynningu frá S&P kemur fram að kjarnaeinkunn TM sé BBB en vegna þess hversu stór hluti vátryggingarekstrar og fjárfestinga TM er á íslenskum markaði fylgi horfur félagsins horfum fyrir langtímaskuldbindingar íslenska ríkisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK